laugardagur, október 28, 2006

Klukkan er rúmlega tólf

Hvernig fer þetta hjá sjálfstæðismönnum? Hef ekki hugmynd og held þetta sé tvísýnt. Miðað við að það eru 21.000 á kjörskrá og óflokksbundnir stuðningsmenn mega kjósa finnst mér kjörsóknin fara hægt af stað. Gæti unnið með Gulla, hann hefur mikið batterí í gangi, sem er að handlanga þúsundir á kjörstað. En hvað veit maður svosem hérna í sófanum.

Björnsmenn segja að andstæðingar flokksins voni að Björn tapi. Ekki held ég að það sé rétt. Ég held að það verði meira pláss á hinni pólitísku miðju ef Björn vinnur. Þess vegna hljóta andstæðingar flokksins að telja hann vænlegri keppinaut í kosningabaráttu í vor og svo hefur hann náttúrlega verið virkur gerandi í mörgum umdeildum málum.

3 ummæli:

Grimur sagði...

Hvernig er það er Ingólfur frá Hellu ekki lengur í boði? Ég pant kjósa hann.....

Pétur Gunnarsson sagði...

Ingólfur er fluttur frá Hellu, kominn á mölina, býr í Grafarvoginum held ég. Annars ættir þú ekki að kvarta, afkomendur hans eru í kjöri í NV, Jón Bjarnason, Addi Kitta Gauj, Sturla, Sleggjan, þeir eru allir Ingólfur inn við beinið.

Grimur sagði...

Talaðu fallega um þann mikla meistara Addi Kitta Gauj - við erum báðir úr Furufirðinum.