Össur skrifar um Sleggjuna og telur fráleitt að Kristinn taki 3ja sæti framsóknar í Norðvestur í samræmi við niðurstöður prófkjörsins sem hann stofnaði sjálfur til.
Því var hvíslað að mér - og er góð ábending - að Össuri stæði líklega nær að hafa skoðun á því hvort Anna Kristín Gunnarsdóttir, þingmaðurinn sem skipaði 2. sæti lista Samfylkingarinnar í Norðvestur í síðustu kosningum en féll fyrir tveimur nýliðum niður í 3ja sæti í prófkjöri flokksins nýlega ætti að taka það sæti eða axla sín skinn og leita kannski á náðir frjálslyndra.
Hvernig er það, ætlar Anna Kristín að taka sætið, eða er kominn upp klofningur í Samfylkingunni í Norðvestur eins og hjá Valdimar og félögum í Kraganum?
mánudagur, nóvember 20, 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Allt um málið hér: http://www.skessuhorn.is/Default.asp?sid_id=24845&tId=99&Tre_Rod=001|002|&fre_id=43768&meira=1
Skrifa ummæli