sunnudagur, nóvember 26, 2006

Tímabært uppgjör

Jón Sigurðsson átti líka fínan leik á miðstjórnarfundi Framsóknarflokksins, miðað við þær fréttir sem ég hef haft af honum. Auðvitað réði afstaða Íslands engum úrslitum um innrásina og listinn margumræddi var einhliða bandarísk uppfinning en þeirri afstöðu sem íslensk stjórnvöld tóku fylgir þung siðferðileg og pólitísk ábyrgð og óhjákvæmilegt að málið sé rætt í þaula.

Þessi innrás var byggð á lygum um gereyðingarvorp á borð við þær sem Colin Powell flutti frammi fyrir Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna. Vísvitandi lygum eins og þeim sem Cheney og félagar hans reyndu hvarvetna að koma á framfæri um ímynduð tengsl Íraks við Al Qaeda. Ranghugmyndum eins og þeim að Tony Blair væri trausts verður. Án þess trausts sem íslensk stjórnvöld báru til stjórnvalda nánustu bandalagsríkja Íslendinga í alþjóðamálum um áratugaskeið hefði afstaðan orðið önnur, það vita amk þeir sem þekkja hug Halldórs Ásgrímssonar til málsins. Þetta traust misnotuðu Bandaríkjamenn sér enda er það nú að engu orðið.

Aðferðin sem Halldór og Davíð Oddsson viðhöfðu við ákvörðunina var amk pólitísk mistök og svo afdrifarík að nauðsynlegt er að tryggja með löggjöf að sambærilegar ákvarðanir fái vandaðri meðferð í framtíðinni. Hins vegar er auðvitað borin von að lýðskrumarar eins og Össur Skarphéðinsson og Ágúst Ólafur Ágústsson leggi skerf til málefnalegrar umræðu um þau mál.

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hvenær ætli DO mæti á vettvang og tali Jón niður. Sjáum við kannski fyrir okkur viðtal við DO fyrir utan Seðlabankann þar sem hann segir einkar ósmekklegt af Jóni að tala með þessum hætti illa um fyrirrennara sinn í embætti formanns framsóknarflokksins?

Pétur Gunnarsson sagði...

;-) kæmi ekki á óvart.

Nafnlaus sagði...

Fínn pistill.

Hvernig er það annars með RSS-ið hjá þér?
Smelli maður á fyrirsagnir greina þinna á tidarandinn.is, fær maður ævinlega upp allt aðra grein.

Svo þarf maður að ýta á HUX-ið efst til að fá upp alla nýjustu pistlana og finna góðgætið þar.

Þetta er gríðarleg vinna og gott ef hægt væri að laga :-)

Pétur Gunnarsson sagði...

takk fyrir þetta baldur, ég hef áður fengið svona ábendingu um RSS-ið og þar sem ég er tæknilegur frummaður fékk ég aðstoð við að kanna stillingar og er sagt að þetta sé í lagi hjá mér, ég er sjálfur með rss og það virkar fínt.