föstudagur, október 13, 2006

Ha, ráðherra?

Fréttablaðið í dag ræðir við Þorstein Pálsson, ritstjóra sinn í frétt á bls. 2. Í fréttinni er Þorsteinn í hlutverki fyrrverandi dómsmálaráðherra í ríkisstjórn Davíðs Oddssonar, á þeim tíma þegar Jón Baldvin segir að sími sinn hafi verið hleraður. Þorsteinn talar um alvarleika þess að Jón Baldvin hafi ekki látið samráðherra sína vita.

Einhverra vegna nýtir blaðið ekki tækifærið til þess að spyrja Þorstein um almenna vitneskju hans um starfsemi leyniþjónustunnar og símhleranir. Nú þekki ég blaðamanninn sem skrifar fréttina og er hann einhver ágætasti ungi blaðamaður sem ég hef starfað með, með fréttanef í lengra lagi og fagmaður fram í fingurgóma. Ég ætla að gefa mér að það sé ekki áhugaleysi hans sem veldur því að svarið við þessari spurningu er ekki að finna í blaðinu. Raunar minnst ég þess ekki að nokkur fyrri ráðherra hafi verið spurður út í þetta í Fréttablaðinu, það hef ég þó ekki kannað í þaula.

Ég minnist þess hins vegar að Morgunblaðið spurði Óla Þ. Guðbjartsson og Jón Sigurðsson fyrrverandi ráðherra út í þetta á miðvikudaginn en náði þá hvorki í Þorstein né Halldór Ásgrímsson. Vonandi heldur Mogginn amk áfram að reyna að ná í þá og einnig væri fróðlegt að heyra hvað Friðjón Þórðarson hefur að segja en hann var dómsmálaráðherra í ríkisstjórn Gunnars Thoroddsen. Í vikunni greindi einmitt Morgunblaðið frá því að Friðjón hefði flutt mál fyrir Hæstarétti í sumar þótt hann sé orðinn 83 ára að aldri.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Já, það er merkilegt að það virðist (hjá sumum) skipta meira máli að Jón Baldvin lét ekki vita af því að verið væri að hlera símann sinn heldur en að sími utanríkisráðherra hafi verið hleraður. Smjörklípa?

Og enn einu sinni sýna íslenskir fjölmiðlar ótrúlegt dáðleysi, því miður hittirðu naglann á höfuðið þar.
Vil nota tækifærið og þakka fyrir góða pistla, megi athugasemdir vera opnar sem lengst!