föstudagur, október 27, 2006

Hvað segir Samkeppniseftirlitið?

Valdimar er misboðið enda stendur málið honum nærri. Er ekki verið að lýsa hér ólögmætum viðskiptaháttum?
"Fréttablaðinu er tryggt fjármagn svo lengi sem það tilheyrir samsteypu Baugs en hins vegar kunna ókostir þessa eignarhalds að vera þeir að blaðið fái mun minna fyrir hverja auglýsingu fyrirtækja Baugs en ef það tengdist ekki Baugi," segir Guðbjörg en hún telur að óneitanlega veki slík slagsíða í birtingum á auglýsingum upp þá tilgátu að Fréttablaðið bjóði systurfyrirtækjum sínum verulegan afslátt af auglýsingaverði sem önnur dagblöð geta ekki keppt við.

Ég sé ekki af þessum fréttum að fjölmiðlafræðingurinn sé í snertingu við hugtakið snertiverð og þann möguleika að það sé best að auglýsa þar sem flestir lesa, þannig fái maður bara mest fyrir peninginn. En um sérstaka afslætti til systurfyrirtækja: mundi það standast samkeppnislög?

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Já, teknískt séð myndi slíkt standast samkeppnislög - t.d. ef því væri pakkað inn sem magninnkaupum. Þeir auglýsa meira, jafnar og þar með mega þeir fá betra verð en hinir.
Þetta virkar þannig á öllum fjölmiðlum.
Þetta hefur margoft fengist staðfest, t.d. í VSK-málum Stöðvar 2 á sínum tíma vegna viðskipta við Skífuna.